AlmaBeibí;)
Textabox
28.02.2008 22:44:13 / AlmaBeibí;)

GEÐVEIKIR!!!

vá mig langar endlaust mikið í þessa skó!!! bara svo fokkdýrir ..! er ekki einhver þarna úti sem er til í að sponsa þetta fyrir mig :) styrkja fátækan námsmann hérna sem virkilega vantar þessa skó!! .. :D

http://a704.ac-images.myspacecdn.com/images01/112/l_32d1fa0f6d96614ca5bd6a9cb0eb5107.jpg

luv it :) 

Annars þá er ég bara að fara í próf á morgun og svo í bjór(ó)vissuferð .. svona upphitun fyrir árshátíðina sem er föstudaginn 7 mars :) jej gaman !!! ... svo 15 mars þá fær lilla nafn jej ! :)       
Buðum mömmu, önnu, gilsa og lillu í mat í gær :) fyrsta matarboðið! rosa gaman :) allir svaka sáttir :)             

Jæja farin að gera eithvað.. Bæjów :)

» 8 hafa sagt sína skoðun

26.02.2008 14:30:46 / AlmaBeibí;)

Hæ aftur!

Hæhæ! hvað er í GANGI!  það er búið að breyta öllu hérna í 'vefstjórn' á bloggcentral! hef ekkert nennt að spá í þessu .. afsaka bara bloggletina ;) en mér sýnist hérna fyrir ofan að það sé hægt að setja inn myndir!  snilld.... reyndar er ég frekar svekt yfir því að það er allt farið í fokk með allar hinar myndirnar sem ég hef sett hér inn áður :(  ætlaði að fara skoða það allt um dagin en þá var það bara horfið! og það er allt í gömlu ónýtu tölvunni minni pivpiv :cry:    ...

eníveis þá er ég allavega flutt í Hraunbæinn og eru allir velkomnir í heimsókn!!! bara láta vita á undan svo ég geti hringt í tæknimann til að láta kenna mér á kaffikönnuna svo ég geti nú hellt upp á kaffi eða eithvað :lol: 

Ligg núna í LAzyboy sófasettinu að horfa á Click! gaman að því !! ... 
ég er ekkert rosalega sátt núna þar sem að hleðslutækið í HP tölvuna mína er ónýttt og þarf ég alltaf að fá að full hlaða tölvuna hjá árna í skólanum áður en ég fer heim heh :) get svo verið í henni þar í svona 2-3 tíma jejj..... 
EF EINHVER Á HP HLEÐSLUTÆKI HANDA MÉR ÞÁ ER HANN/HÚN BEST/UR!!!

Helgin liðin og var hún bara sú fínasta svona til að byrja með .... á föstudaginn var farið í vísóferð kl 5 og svo var tekið rútu þaðan upp í vodafonehöllina og var rosa djamm þar! endaði svo í bænum en var það nú bara stutt rölt og svo farið heim bara um 3 leitið þar sem maður var nú orðin þokkalega góður eftir þetta 10 tíma djamm!!! .. ég var nú ekki með myndavélina á mér.. fyrsta skipti sem maður klikkar á því! En held það sé nú annað djamm næstu helgi þá kanski prófa ég þetta nýja myndakerfi hérna inn á bloggcentral =)

Laugardagurinn hjá mér fór í það að faðma póstulínið og láta þjóna mér! já takk! ekki góður dagur!!!! svo var jú konudagurinn á sunnudaginn og þar sem ég er bara stelpa ekki kona þá hélt ég ekkert upp á það ! ...  fór í mat til mömmu ásamt fríðum förunautum !

litla yndislega æðislega frænka mín verður skírð á pálmasunnudag alveg einsog stórafrænkasín :) .. ég var semsagt skírð á pálmasunnudag og fermdist einnig þann dag... ef ég mun gera eithvað sem ég þarf að velja dag á í framtíðinni þá gæti vel hugsast að það yrði pálmasunnudagur :) besti dagurinn!!! .... en já annars þá er ég bara endalaust spennt fyrir að geta sagt eithvað nafn þegar ég er að tala við þessa yndislegu litlu sætu stelpu :)

snjór snjór snjór! ... og ég hef ekkert verið að fara á bretti :( ... maður er náttla agalega fátækur þessa dagana!!!!!!! :/ keypti gardínur í íbúðina og hélt að 3 metra löng stöng myndi duga but NOOOO ég þarf að kaupa AÐRA soleis til að setja þær saman og þetta er sko ekkert ódýrt neitt :(:( pivpiv    

Jæja hætt að bulla'etta :) bið bara að heilsa ykkur öllum í bili og kem vonandi með einhverjar krassandi myndir eftir næstu helgi..!!! svo auðvita verður haldið eithvað skemmtilegt innflutningsparty þegar maður er alveg almennilega búinn að koma sér fyrir :)

Bless í bili elskurnar og munið að mig BRÁÐVANTAR HP fartölvu hleðslutæki :) okey bæjów =)     -Almus


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.02.2008 22:00:53 / AlmaBeibí;)

Bloggister

Sæl þið! Svona ef ég byrja þetta blogg á því að lýsa þessum degi hjá mér þá byrjaði hann á því að vakna við yndislegt hljóð í vekjaraklukkunni minni sem er svona vögguvísuhljóð (gott til að vekja mann heh...) nöldraði í Gústa að koma með mér að ná í Sturlu því ég nennti ekki ein og tók það aðeins á þar sem maðurinn vildi frekar liggja í þynnku í bælinu ennn það tókst á endanum og fórum við 3 saman að borða pizzu og svo skutluðum við Sturla Gústa í vinnuna, eftir það þá vorum við Sturla bara að dunda okkur yfir daginn, bíló og svona ;) já.. ef þú veist ekki hver Sturla er þá er hann alveg yndislegur sætur 5 ára fatlaður strákur sem ég er með í liðveislu :) jæja frábært þá veistu það! .... 

 

Mér varð hugsað áðan til einnar sundferðar sem ég fór í  í vinnunni í sumar... og þar var eitt stykki svona skvísa eithvað að þvo sér og svona alveg alltílæ með það en neinei tekur gellan svo upp rakvél og fer að raka á sér lappirnar,, undir hendurnar og skuðið! (þúveist..)  .. mér blöskraði.. ég bara trúði þessu ekki! Er ég eina sem fannst þetta bara algerlega ekki við hæfi eða er þetta rosa eðlilegt? Ætti ég kanski að fara taka með mér venus næst þegar ég fer í sund;)  

 

Annars þá er ég bara í viðskiptafræði í háskóla íslands og er það alveg ágætt bara!... systir mín hún Anna Rut eignaðist litla prinsessu 3 janúar! Og á hún semsagt 1 mánaðar afmæli í dag;) ... þau voru hérna í heimsókn áðan og vá maður getur horft á þessa krúsídúllu endalaust!!! .. þau eru með barnalandssíðu undir þorgilsdóttir   :)  Ég hata þennan takka þarna “insert” ég ýti stundum óvart á hann og svo ætla ég að breyta einhverju inn í miðjum texta og þá strokast alltaf út.. vel pirrandi..  

 

Fór í bíó í gær með Hörpu (sem er núna upp á spítala með söru dís:( sara fékk hitakrampa litla greyið ! vona það verði allt í lagi) fórum að sjá untraceable og mér fannst þessi mynd bara nokkuð góð sko!!!!! .....  en þarna í bíóinu þá fór ég að hugsa hvort að manni verði alltaf kaldara með aldrinum ?? ... því mér finnst einsog svona ungar stelpur séu svo oft alveg agalega ílla klæddar og kippa sér ekki upp við það..... sko í bíóinu þá var ég í síðermaeinhverju og leðurjakka með trefil og vetlinga , harpa var í hettupeysu og jakka og e-d voða vel klæddar .. .en svo voru þarna svona 16 ára píur í hlírabolum? HOT píur ;) mar spyr sig ...  

ALLLAVEGA þá hef ég ekkert rosa mikið meira til að skrifa um .. bara þúst.. jólin yndisleg, lífið yndislegt og allt yndislegt ! hah :)  .. meirasegja ætlar hún heba litla að fara flytja bráðlega í bæinn ! og ég bara sjálf að fara flytja út :) ... ræða yndislegt? ;) hehe

 

jæja farin að lita móðurina ..

Kv- Alma

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 13:01:44 / AlmaBeibí;)

Endurvakning 'Almabeibí' ?

Vegna mikillar áskorunar hef ég ákveðið að  koma mér aftur inn í bloggheiminn og tröllríð'onum! ... en aðeins ef ég fæ MINNST 5 komment hér við þessa færslu frá 5 aðilum! ...

hvernig ætli það eigi eftir að virka? ... allavega hafa alltaf verið fleiri en 5 heimsóknir hér inn hvern dag þótt ég hef ekki skrifað stakt orð hér inn síðan bara long long time ago ... ÞANNIG.. komment takk og þá koma einhverjar agalega skemmtilegar og spennandi færslur ... :)

Bæjów!

-=Almus=-


» 9 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 11:14:26 / AlmaBeibí;)

Alveg dauð bara....

:)

hva segiði?

á ég að koma með e-d blogg?

varla að nenna standa í þessu sko =)

alllavega þá var þetta sumar náttla bara tær snilld! þjóðhátíð í eyjum of fun, rosa fínt á húsavík með gústav axel og allt bara einum of gaman :)

ég er í HÍ núna og er það ágætt... félagslífið fínt eða allavega er maður búinn að taka nokkur djömm með þeim og er einnig að faraí kvöld í e-d party ;)

vá það er svo langt síðan að ég bloggaði að ég veit ekkert hvað ég á að blogga hérna sko :) inga er farin að toppa mig í blogginu hérna ! og þá er mikið sagt :P ih hehehe =)

ég hef ekkert nennt að setja myndir hingað inn.. en er samt búin að setja myndir úr eyjum og e-d á snapfish.com en það er bara allt harðlæst og kann ég ekki að "aflæsa" það .. þannig ef einhver kann þá endilega kenna mér =)

ég hef ekkert að segja.. ætla að fara lesa markaðsfræði :/

Later dude's

hey ef þið eruð með myspace þá endilega adda mér http://www.myspace.com/almarun


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 21:01:44 / AlmaBeibí;)

Myndir!!!

Jæja var að setja inn myndir frá helginni inn og nenni ég ekki að koma með bloggið í dag þar sem ég var svo lengi að setja þessar myndir inn.. kem bara með blogg frá helginni á morgun .. en get ég samt sagt að þessi helgi var SNILLD! laugardagurinn var bara mest fun í heimi =) allavega þá eru myndirnar herna í aðalvalmynd undir 13-15 júlí .. njótið folks!

p.s ég HATA þetta "stef" hjá skjá einum....


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 16:59:57 / AlmaBeibí;)

smá færsla..

Hæ.. hef ekkert nennt að vera blogga þar sem ég hef bara ekkert verið mikið í tölvu.. tölvan mín er biluð og hef ég bara fengið annaslagið að fara í systir minnar tölvu...

 

 

 

annars þá þarsíðusthelgi vorum ég og heiða að vinna á bar á föstudeginum og fórum svo í húsafell á laugardeginum sem var bara nokkuð fun .. svo var bara farið á línuskauta og vinna þá vikuna..

 

 

 

síðustu helgi þá á föstudeginum bauð inga mér og ernu í mat og átum við og sötruðum og kíktum svo í bæinn.. á laugardeginum var ansi mikill slappleiki og horðum ég og inga bara á video .. á sunnudeginum fór ég með ingu í bíó sem var ágætis afþreying...  

 

a llavega þá er ég bara búin að vera vinna og er það hin fínasta skemmtun enda frábær vinna :) svo er maður  búinn að kaupa sér flug á föstudeginum á þjóðhátíð í eyjum um verslunarmannahelgina! Ég er ekki frá því að þetta eigi eftir að vera hin hreinasta snilld! 

 

Ég hef ekkert almennilega verið að taka almennilega myndir upp á síðkastið þannig ég kem ekki með neinar núna en kanski verð ég dugleg um helgina þótt ég viti nú ekkert hvað ég er að fara bralla.. hvað á annars að gera um helgina ??? endilega svara í komment :)

 

ég nenni ekki að skrifa meira.. kem vonandi með eithvað skemmtilegra bara eftir helgina :) Adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 21:29:00 / AlmaBeibí;)

komment TAKK!

Jæja hvað segiði .. ? er það ekki

HUMARHÁTÍÐ Á HÖFN

næstu helgi?

eða hvað er planið?

Svara í komment!!


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 20:35:12 / AlmaBeibí;)

Bíladagar á akureyri!

JÆJA kanski maður komi með smá færslu um þessa yndislegu akureyrarferð sem við heiða fórum í ... allavega þá á föstudeginum fórum við heiða inn í keflavík að skipta um dekk á bílnum mínum svo bara pökkuðum við niður og skrunuðum til akureyrar .. það var bara ansi skemmtileg ferð .. við eigum það til að finnast við tvær ógeðslega skemmtilegar og fyndnar en það er ekkert slæmt :P .. einhverjir gaurar með öðrum orðum "jelly" voru e-d að rugla í okkur mest allaleiðina .. keyrandi hliðiná okkur, gefandi okkur nr, opnandi hurðar og bullandi og sullandi eeen það var bara skondið .. svo var komið  á akureyri seinnipartinn og biðum við eftir hinu liðinu og tjölduðum svo hjá árný og valla og þeim .. svo var bara skellt í sig áfengi og trallað fram á morgun eeeeenndalaust gaman og endalaust bullað í fólki og látið bulla í sér...

á laugardeginum var geðveikislega heitt og skínandi sól svo það var ekki líft inn í tjaldi svo það var bara sofið á þúfu inn í skógi og útá túni með sæng og kodda sem leiddi af sér smá bruna.. vöknuðum bara við þaðað einhverjir gaurar, nágrannar okkar bara "uu eru þessar stelpur ekki búna að liggja þarna soooldið lengi" ..  spes en jæjaaa... svo fórum við bara inn í akureyrarbæ og fengum að fara í sturtu og svona í heimahúsi þar sem lalli var.. við einokuðum víst bara baðherbergið í 2 tíma en þaaaðð var alltílagi sko =) ... svo fengum við okkur jónsprett og fórum upp á tjaldsvæði ... byrjuðum að skella í okkur áfengi og tralla pínu .. svo ákvaðum við að kíkja í party og bæinn þannig það var skipt um búning og skellt sér niðreftir .. vorum í bænum til svona 4 og fórum þá aftur upp á tjaldsvæði og skiptum aftur yfir í kósíbúninginn vel í því og trölluðum þar til svona 6 því þá ákváðum við að kíkja inn í tjald og gá hvað myndi gerast... (held ég þurfi ekkert að segja hvað gerðist.. og nei ekkert dónalegt .. æ ókey segi það bara ... "sofnuðum") sváfum þar alveg í þokkalegan tíma og

þegar við vöknuðum langaði okkur í BRYNJUÍS (um 11 leitið á su) og við náttla bara út í bíl án þess að hugsa og keyrðum í akureyrarbæ .. auðvita aaauuuðvita þurfti fröken lögregla að skipta sér af og láta mann blása og vesen og það var víst ekkert í góðu lagi að ég væri að keyra svo hún bara tók bílnn min og skammaði ´mig smá og já .. það var VEL pirrandi... við svona "uuu heyrðu geturu þá skutlað okkur upp á tjaldsvæði" but NOOOO þeir vildu það ekkert svo við vorum bara fastar í hjarta akureyrar....... meira ruglið.. fórum að fá okkur að éta en ég hafði enga lyst og vil ég meina að ég hafi verið of pirruð útí þessa gutta þarna..   við húkkuðum okkur svo bara far upp á tjaldsvæði og lögðum okkur.. sóttum bílinn kl 5 og rúntuðum um svæðið og pökkuðum niður öllu og lögðum svo af stað í bæin um 8 leitið eða nei örugglega seinna ... og var ógeðslega erftt að keyra heim.. sökum þreytu og sársauka í auga eeennn það hafðist.. :)

 held ég hafi nú eki margt meira um þessa ferð að segja nema að hún hafi verið hin tærasta snilld og verður klárlega endurtekið eithvað álíka í sumar!! .. ég er búin að setja inn myndir og eru þær ekkert fön nema fyir mig og heiðu en ákvað samt að deila þessu með ykkur ... eru þær hér til vinstri í aðalvalmynd undir "bíladagar á akureyri"

Kv. Alma


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 22:49:48 / AlmaBeibí;)

long tæm nó sí

vóóó langt síðan ég hef bloggað :) ..   allavega svona það helsta sem er búið að gera hjá mér sem er nú ekki mikið...

fyrsta helgin í júní hljómaði svona:

  • Afi afmæli
  • Ættarmót
  • skoðað fossa og hella
  • vaðið á
  • sofið í húsbíl
  • sungið og trallað

 

annars þá er ég bara búin að liggja í einhverjum leiðindar veikindum :( það var ekkert djamm hjá mér núna um helgina útaf þessum blessuðu veikindum ..  kíkti reyndar á sólon með heiðuminni sem var ágætt ! engin reykingarlykt og enginn reykur utum allt .. maður sá allt e-d óvenjuvel :)  .. ég fann nú ekki þessa svitalykt sem fólk er að tala um meira bara rakspíra og ilmvatnslykt .. en kanski er það bara á sólon því þar safnast saman allir hnakkarnir :P

ég er búin að minnka mig niður í 30% vinnu á móaflöt og er svo í 100% í sumardagvist fyrir einhverf börn sem er þokkalega skemmtilegt :) fórum í fjölskyldu og húsdýragarðinn í dag.. og var lúmsk sól og varð maður ansi rjóður í kinnum eftir þann dag:) vona maður verði svoleiðis eftir alla dagana í sumar :)

ég er ógeðslega fúl með að vera ekkert að fara út í sumar :( en kanski bætir maður það bara upp með þjóðhátíð :) svo er ég líka að fara nuna um helgina á bíladaga á akureyri ..utileiga og skemmtilegheit :) gaman gaman!    svo ofkors er maður bara að safna pínu til að eiga pening næsta haust því ég er búin að fá inn í viðskiptafræðina í HÍ =)  víví  ... þannig það er bara alvaran næsta haust ;)

ææ ég er alveg tóm :) ætla bara láta þetta næja.. var líka að skrifa/senda email réttútfyrir eyju svo eg nenni ekki að vera tikka meira ;)

bið að heilsa!

kv.Alma


» 4 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 19:35:19 / AlmaBeibí;)

Myndir!

 jésjés var að setja inn hinar og þessar myndir af djamminu í maí .. er þetta semí ritskoðað þannig þetta eru færri myndir en voru teknar.. en klárlega heitar myndir samt ;)  og eru þær hér vinstramegin efst "fleiri myndir í Mai" Enjoy


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 07:09:52 / AlmaBeibí;)

BLA!!

Hæ! ákvað að blogga núna þótt ég sé ógeðslega viðbjóðslega ruddalega ógeðslega pirruð ! ég var semsagt á djamminu áðan rosa stuð en neinei SLAGSMÁL og alma heppna lennti undir því og er með skurð,marblett og heavy bólgu á löppinni.. hlakka ekki til að sjá það á morgun.. og í þokkabót í hvítu pilsi, hvítum jakka og hvítum skóm sem er ekki mikið lengur hvítt MELLUR!

aaallavega þá var ég að djama síðasta laugardag og miðvikudag og er það allt bara rugl og tók nokrar myndir sem eru hvort er ekki netinu hæfar svo ég nenni ekki að pæla í því að setja þær inn !! ´ætla reyna sofa þessa BÓLGU úr mér

blessbless

-Alma


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 21:18:24 / AlmaBeibí;)

Bravó myndir!!!

ÉG LAGAÐI MYNDADÓTIÐ ... VÍST AÐ HIN SLÓÐIN VIRKAÐI EKKI SVO ÞAÐ ERU MYNDIR FRÁ FYRSTU HELGINNI Í MAI HÉRNA VINSTRAMEGIN EFST  nnnjjjóótið =) 

 

jæjaa kominn tími á að blogga um þessa fínu helgi ...

á fimmtudeginum náði ég í hebu á flugvöllinn um kvöldið og fórum við á vegamót að hitta jónas, adda og félaga þeirra og fengum okkur bjór og komum heim um 2 leitið

á föstudeginum var vaknað eldsnemma og farið í klippingu/litun mega pæjur, versluðum endlaaust mikið og fór ég svo í neglur... um 6 leitið fórum við á þorlákshöfn í mat til mömmu og pabba hebu .. skrunuðum heim um 9 leitið og skellt sér í búninginn og beint a djammið! endalaust gaman

á laugardeginum var verslað pínu meira og svo um kvöldið farið til hrefnu að hitta allar skvísurnar og var drukkið þar frameftir og farið svo í annað party í 101 og auðvita tekið rölt á þetta í bænum :)

sunnudagurinn var semí þunnur... fórum í kringluna+laugaveg en ekkert keypt (enda búnar að missa okkur í fatakaupum) fórum að borða á pizza hut og skutlaði ég svo hebu upp á flugvöll um hálf 7

á mánudagin fór ég á caffi victor með mýríam og arný og fengum við okkur að borða sem var bara ágættt skomm

þriðjudagin fór ég í bíó með önnu og gilsa á myndina shooter sem var ansi góð !

í dag er miðvikudagur og er ég mjög þreytt þar sem ég er búin að vera á næturvöktum síðustu 2 nætur ... held ég fari bara snemma að sofa í kvöld :)

Enjoy  bæó =)


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 03:29:24 / AlmaBeibí;)

Næturvakt

oj ég er geðveikt þreytt........ er a næturvakt .... hlakka mjög mikið til að komast heim og kúra í bláa beddann í tölvuherberginu (ótrúlegt en satt)

er búin að vera reyna setja inn myndir frá helginni... er það er bara e-d AÐ geðveikt pirrandi! ætla prófa reyna betur á morgun þegar ég er búin að SSOOOFFFAA :)

BlessBless kv. Alma næturdrottning ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 11:26:19 / AlmaBeibí;)

Miðvikudagurinn 2 Maí

Halló Fallega fólk..

aðeins að uppfæra þetta allt saman hérna.. er að setja inn myndir frá nokkrum djömmum í Apríl :)  og koma þær inn á http://almarun.myphotoalbum.com/ 

Allavega þa hefur apríl mánuður verið þannig hjá mér..

  • Fór í teiti til valnýar og bæjarrölt
  • Ég, Heiða, Harpa og Sirra vorum að sötra heima hjá Sirru og leika okkur í nintendo Wii :) kíktum svo í bæinn og höfðum það mega gaman
  • Ég og Heiða sötruðum heima hjá Atla og fórum svo í bæinn og tókum sporin
  • Ég er komin í minnsta rúm í heimi niðrí Tölvuherbergi.. ef það má kalla þetta rúm..
  • Systir mín og kærasti hennar eru í mínu herbergi.. tímabundið (samt alveg 2 mánuði!)´
  • Vinna, húsdýragaður, Bjarkarsalur HARÐSPERRUR!
  • Afmæli hjá SöruDís sætustu prinsessu sem er orðin 1 árs :)
  • eldaði fiskibollur í vinnunni og það var STEIK
  • frétti í gær að ég átti að elda aftur fiskibollur í dag... ehhh
  • Nanna besta bjó þær til fyrir mig =)
  • Djamm, Djamm, Djamm..
  • Sofa, sporthús, ljós, bíó
  • komst að því að sporthúsið er THE place til að hussla
  • .. já og líka minnsirkus haha :)
  • Heba kemur á morgun!!! MORGUN vívívívíví :)
  • er að reyna komast í neglur en pían á aldrei tíma :(
  • VERSLA VERSLA VERSLA á næstu dögum :)
  • sendi handrukkara á snorra 12 mai :P
  • langar til útlanda :( ....tyrkland?
  • Sækja um í viðskiptafræði í hí 8|
  • Þið sem eruð í prófum.. Gangi ykkur vel!!!

Jæja ætla láta þetta vera nóg í bili :) Bless elskurnar ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 24
Heimsóknir
Í dag:  29  Alls: 163330
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 28 febrúar
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Leitarbox